Könnun: Flestir myndu vilja sjá Vigdísi Hauksdóttur sem næsta borgarstjóra

Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu myndu vilja að Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra í Reykjavík?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Vigdísi Hauksdóttur 58,4%

Eyþór Arnalds 15,7%

Kolbrúnu Baldursdóttur 10%

Sönnu Magdalenu Mörtudóttur 8,9%

Dag B. Eggertsson 6,2%

Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur 0,6%

Líf Magneudóttur 0,3%

Dóru Björt Guðjónsdóttur 0,2%

Alls voru greidd 649 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila