Könnun: Ekki rétt af séra Davíð Þór Jónssyni að meina skólabörnum að koma í Laugarneskirkju í aðdraganda jólanna

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja það ekki rétt af séra Davíð Þór Jónssyni að meina skólabörnum að koma í Laugarneskirkju í aðdraganda jólanna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus en í þessari könnun var spurt: Telur þú rétt af séra Davíð Þór Jónssyni að meina skólabörnum að heimsækja Laugarneskirkju í aðdraganda jóla?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 89,9%

Já 8,1%

Hlutlaus 3,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila