Könnun: Ekki sammála mati Þórólfs Guðnasonar um að takmarkanir vegna Covid geti varað næstu fimm til fimmtán árin

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir

Talsvert skiptar skoðanir eru um þau orð Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að takmarkanir vegna faraldursins geti varað næstu fimm til fimmtán árin, en þó eru ívið fleiri sem ekki eru sammála því mati. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Útvarps Sögu.

Könnunin fór fram á hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring og var spurningin eftirfarandi: Ert þú sammála mati Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um að takmarkanir vegna Covid-19 geti varað næstu fimm til fimmtán ár?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 52,5%

Já 40,2%

Hlutlausir 7,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila