Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru sáttir við að hvalveiðar séu hafnar á ný. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefnum á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu sátt/ur við að hvalveiðar séu hafnar að nýju?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 84,9%
Nei 11,9%
Hlutlaus 3,1%