Könnun: Flestir sáttir við að Logi Einarsson hætti sem formaður Samfylkingarinnar

Logi Már Einarsson formaður Samfylkingarinnar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru sáttir við að Logi Einarsson láti af formannsembætti Samfylkingarinnar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu sátt/ur við að Logi Einarsson hætti sem formaður Samfylkingarinnar?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 75,3%

Hlutlausir 13,6%

Nei 11,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila