Könnun: Ísland á að segja sig úr Shengen

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Ísland eigi að segja sig úr Shengen. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Á Ísland að segja sig úr Shengen.

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 89,7%

Nei 8,9%

Hlutlaus 1,4%

Alls voru greidd 783 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila