Könnun: Ekki á að einkavæða Keflavíkurflugvöll

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki rétt að einkavæða Keflavíkurflugvöll.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að einkavæða Keflavíkurflugvöll?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Nei

94%

Já 4,6%

Hlutlaus 1,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila