Könnun: Lítil ánægja með að Dagur B. Eggertsson bjóði aftur fram

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er ekki ánægður með að Dagur B. Eggertsson bjóði sig fram til endurkjörs. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu ánægð/ur með að Dagur B .Eggertsson borgarstjóri ætli að gefa kost á sér áfram í borgarstjórn?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 85,9%

Já 10,1%

Hlutlaus 3,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila