Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja persónukjör til Alþingis. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Hvernig vilt þú að kosningum til Alþingis verði háttað?.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Eingöngu persónukjör 64,9%
Persónukjör að hluta 19,1%
Hafa fyrirkomulagið óbreytt, flokkskosningar 16%