Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna sé velkominn á Íslandi.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Er Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna velkominn á Íslandi?.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 83,5%
Nei 14,4%
Hutlaus 2%