Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er ósáttur við að Vinstri grænir hafi komið í veg fyrir framkvæmdir NATO á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í könnuninni sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina en í þessari könnun var spurt: Ert þú ósátt/ur við að Vinstri grænir hafi komið í veg fyrir framkvæmdir NATO á Suðurnesjum?
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi og var niðurstaðan eftirfarandi:
Já 87,5%
Nei 9,8%
Hlutlaus 2,6%