Könnun: Reisa ætti fleiri vatnsaflsvirkjanir

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að reisa ætti fleiri vatnsaflsvirkjanir á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að reisa fleiri vatnsaflsvirkjanir á Íslandi? . Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 71,1%

Nei 24,4%

Hlutlausir 4,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila