Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að tryggja eigi réttindi allra barna til þess að þekkja uppruna sinn.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrirhádegi en í þessari könnun var spurt: Á að tryggja réttindi allra barna til að þekkja uppruna sinn?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 80,6%
Hlutlaus 10,6%
Nei 8,8%