Könnun. Stjórnmálastéttin á ekki að ákvarða og ráða efni stjórnarskrárinnar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að stjórnmálastéttin eigi ekki að ákvarða og ráða efni stjórnarskrárinnar.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á stjórnmálastéttin að ákvarða og ráða efni stjórnarskrárinnar?.

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Nei 92,3%

Já 4,8%

Hlutlaus 2,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila