Könnun: Telja að það stefni í löng verkföll í vetur

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að það stefni í löng verkföll í vetur. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það stefni í löng verkföll á komandi vetri?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 75,4%

Nei 20,7%

Hlutlaus 3,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila