Könnun: Telja eldgosið á Reykjanesi hafa jákvæð áhrif á ferðaþjónustuna

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að eldgosið á Reykjanesi hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustuna á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að eldgosið á Reykjanesi hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustuna á Íslandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 80%

Nei 12%

Hlutlaus 8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila