Könnun: Telja Guðmundar og Geirfinnsmál ekki verða upplýst í framtíðinni

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Guðmundar og Geirfinnsmál verði ekki upplýst í framtíðinni. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Geirfinns og Guðmundarmálið muni verða upplýst í framtíðinni?

Niðurstaðan er eftirfarandi:

Nei 65,8%

Já 29,2%

Hlutlaus 4,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila