Könnun: Telja orkuöryggi ekki nægilega tryggt á Íslandi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að orkuöryggi sé ekki nægilega tryggt á Íslandi. Þetta kom í ljós í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Telur þú að orkuöryggi á Íslandi sé nægilega tryggt?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 81%

Já 16%

Hlutlaus 3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila