Könnun: Vilja að börn fái talsmann þegar mál þeirra eru til vinnslu hjá barnaverndaryfirvöldum

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að börnum verði skipaður talsmaður þegar mál barna séu til meðferðar hjá barnaverndaryfirvöldum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefnum á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Á að skipa börnum talsmenn þegar mál þeirra eru til vinnslu hjá barnaverndaryfirvöldum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 94,1%

Nei 3,7%

Hlutlaus 2,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila