Könnun: Vilja að teymi Þjóðkirkjunnar birti skýrsluna í máli séra Gunnars Sigurjónssonar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Teymi Þjóðkirkjunnar birti skýrslu sína í máli séra Gunnars Sigurjónssonar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að teymi Þjóðkirkjunnar birti skýrsluna í máli séra Gunnars Sigurjónssonar opinberlega?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 81,2%

Nei 9,9%

Hlutlaus 8,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila