Könnun: Vilja að upptakan af Klausturbar verði birt í heild

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að upptakan af samtali þingmanna af Klausturbar verði birt í heild sinni. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að birta upptökuna af Klausturbar í heild?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 63,6%
Nei 29,9%
Hlutlaus 6,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila