Könnun: Vilja ekki að olíuvinnsla við Ísland verði bönnuð

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarp Sögu vilja ekki að olíuvinnsla við Ísland verði bönnuð. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að olíuvinnsla við Ísland verði bönnuð?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 81,4%

Já 13,4%

Hlutlaus 5,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila