Könnun: Vilja ekki að vindmyllugarðar verði reistir í auknum mæli hér á landi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að vindmyllugarðar verði reistir í auknum mæli hér á landi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að vindmyllugarðar verði reistir í auknum mæli hér á landi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 81,6%

Já 14,7%

Hlutlaus 3,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila