Aukið gagnsæi í stjórnslu Kópavogs

Bæjarstjórnin í Kópavogi hefur samþykkt tillögu Pírata, Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar um að birta fylgigögn með fundargerðum bæjarstjórnar.

Í tilkynningu frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjarfulltrúa Pírata segir að á vef Kópavogsbæjar skulu almennt gerð aðgengileg þau gögn sem varða viðkomandi mál og fylgdu fundarboði eða lögð voru formlega fram á viðkomandi fundi.

Þá segir enn fremur að sérstaklega skuli gæta þess að birta öll skjöl sem liggja til grundvallar ákvörðun í máli, nema lög, persónuverndarsjónarmið eða eðli máls leiði til annars. Sigurbjörg segir að um mikilvægt skref sé að ræða í auknu gegnsæi

“ „Þetta er langþráð breyting en fulltrúar Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur tóku þátt í að koma þessu verklagi á þar árið 2016. Með þessu eru stigin mikilvæg skref í átt að auknu gagnsæi. Almenningi gefst nú kostur á að kynna sér forsendur mála sem eru til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn og fastanefndum án þess að þurfa að óska sérstaklega eftir þeim.

Þetta einfaldar þannig um leið vinnu fjölmiðla sem vilja nálgast gögn og starfsfólks í þjónustuveri sem áður sá um að útvega þau samkvæmt beiðnum hverju sinni. Lengi vel hefur tíðkast í íslenskri stjórnsýslu að hafa aðgangshindranir að opinberum gögnum, en slíkt tryggir að aðeins þeir sem þekkja hindrunarbrautina geti aflað sér gagna. Fjölmörg dæmi er enn um slíkt, svo sem aðgangur að ársreikningaskrá og Lögbirtingablaðinu, svo fátt eitt sé nefnt. Píratar hafa ávallt staðið gegn slíku framferði, enda er jafnt aðgengi að upplýsingum jafn mikilvægt í lýðræðissamfélagi og tjáningarfrelsi.“ segir Sigurbjörg.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila