Kórónaveiran og Hvíta Rússland rædd á utanríkisráðherrafundi NB-8 ríkjanna

Fulltrúar NB-8 ríkjanna

Ástandið í Hvíta-Rússlandi var í brennidepli á tveggja daga fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Tallinn í Eistlandi sem lauk fyrr í dag. Í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundinum var meðal annars meint tilræði við rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní fordæmt.  

Vegna kórónuveirufaraldursins er fundurinn í dag sá fyrsti sem ráðherrar NB8-ríkjanna svonefndu eiga með sér augliti til auglitis á þessu ári en þeir hafa haft reglulegt samráð í gegnum fjarfundabúnað. Eistar fara með formennsku í samstarfi ríkjanna á þessu ári og því var fundurinn haldinn í Tallinn.  

Eins og fyrr segir voru málefni Hvíta-Rússlands ofarlega á baugi á fundinum enda hafa ríkin átta sýnt samstöðu í gagnrýni sinni á framkvæmd forsetakosninganna þar í ágúst sl. og harkaleg viðbrögð stjórnvalda við víðtækum mótmælum í kjölfarið. Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna ítrekuðu þeir fyrri yfirlýsingu sína frá 11. ágúst og skoruðu á stjórnvöld í Minsk að leysa pólitíska andstæðinga tafarlaust úr haldi.

Ráðherrarnir fordæmdu enn fremur að taugaeitrinu Novichok hefði verið beitt gegn rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní eins og haldið hefur verið fram og kölluðu eftir óháðri alþjóðlegri rannsókn á máli hans.

Í yfirlýsingunni var einnig lögð áhersla á aukið efnahagslegt samstarf ríkjanna, ekki síst í ljósi efnahagsþrenginga af völdum COVID-19, svo og á samstarf á sviði stafrænna lausna.  

Auk þessa ræddu ráðherrarnir á fundinum alþjóðamál í víðara samhengi, vaxandi togstreitu í samskiptum stórveldanna og mikilvægi þess að styðja við fjölþjóðastofnanir og alþjóðalög. Þá var rætt um það sem hæst ber á vettvangi Evrópusamstarfsins, svo sem samningaviðræður við Bretland. Loks var þess minnst að þrjátíu ár eru liðin frá fyrsta utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila