Velgerðarstofnun Joe Biden átti að safna peningum til krabbameinslækninga. En krabbameinsframtakið „Biden Cancer Initiative“ var mjólkurkýr eiganda og starfsmanna sem mokuðu söfnunarfénu í eigin vasa. Núll krónur fóru í krabbameinsrannsóknir afhjúpar New York Post.
Fyrir forsetakosningarnar var New York Post harðlega ritskoðað af Twitter og Facebook eftir að hafa uppljóstrað um svindlviðskipti Biden feðganna erlendis m.a. í Úkraínu og Kína. Enn á ný ljóstrar blaðið upp um svindlviðskipti Joe Biden, sem fjölmiðlafyrirtæki vestra hafa tilnefnt sem næsta forseta Bandaríkjanna. New York Post er einn af fáum miðlum sem hafa gefið sig á að skrifa um veruleikann sem ekki er hliðhollur Biden en af öðrum miðlum er hann nánast meðhöndlaður eins og heilagur dýrlingur.
Söfnuðu 4,8 milljónum dollara – ekkert fór í krabbameinsrannsóknir
Samkvæmt New York Post söfnuðust um 4,8 milljónir dollara fyrstu tvö árin. Af þeim peningum voru 3 milljónir dollara greidd í laun til starfsmanna sjóðsins. Gregory Simon forstjóri sjóðsins tók 429.850 dollara í laun árið 2018. Simon sem áður starfaði sem lobbýisti hjá stórum lyfjaframleiðendum tvöfaldaði launin hjá krabbameinssjóði Joe Biden miðað við árið áður en þá fékk hann 224,539 dollara í laun.
Afgangur peninganna hefur að mestu farið í ferðalög og ráðstefnur segir New York Post. Krabbameinsframtak Joe Biden greiddi þannig ekki einn einasta dollar til styrktar krabbameinsrannsóknum eins og yfirlýst markmið framtaksins var kynnt. Fólk sem greiddi fé í þeirri trú að verið væri að safna fé í þágu krabbameinsrannsókna hefur því illilega verið svikið. Þegar Joe Biden fór í framboð til forseta, þá var gert hlé á starfemi sjóðsins. Samkvæmt skattayfirvöldum er sjóðurinn engu að síður áfram í fullum rekstri.