Sidney Powell lagði inn kæru um kosningasvindl í Georgia í vikunnu með a.m.k. 30 sundurliðum ákæruatriðum um kosningasvindl og annað ólöglegt og óreglulegt athæfi sem beitt var í almennu kosningunum 2020 í Georgíu. Ákæruatriðin byggjast á vitnum og fullyrðingum sérfræðinga, tengjast svindli póstatkvæða og vanbúnaði öryggismála, skekkjum og brestum og áhættu vegna öryggisleysis Dominion kosningakerfisins.
- Hugbúnaðurinn sem er í Dominion kosningavélunum er notaður af agentum fjandsamlegra aðila eins og Kína og Íran „til þess að vaka yfir og framkvæma svindl í kosningum“ – einnig kosningunum 2020. Þessi ásökun byggir m.a. á skriflegri yfirlýsingu fv. starfsmanns leyniþjónustu hersins sem sagði að Dominion hleypti erlendum fjandsamlegum aðilum inn í kerfið til að svindla með kosningatölur „einnig í nýjustu kosningunum 2020.“
- Fv. öryggisstarfsmaður sósíalíska einræðisherrans Hugo Chavez í Venesúela segir Domino kerfið hafa verið hannað til að „breyta atkvæðum kosninga í þágu ríkisstjórnarinnar í Venesúela til þess að hún gæti starfað áfram sem ríkisstjórn.“ Annað vitni, opinber starfsmaður, segir að „það var svindlað til þess að koma í veg fyrir að Chevez forseti færi frá völdum.“
- Frændi fv. forstjóra Smartmatic sem hannaði hugbúnaðinn fyrir Dominion segir að forstjórinn tryggði að „kosningaútkoman 2004 í Venúsúela voru öruggar fyrir Chavez.“ Segir vitnið að Anthony Mugica forstjóri hafið „tekið á móti tugum milljónum dollara á árunum 2003-2015 frá ríkisstjórninni í Venúsúela til að sjá til þess að Smartmatic tækninni yrði dreift um heiminn þar á meðal til Bandaríkjanna..“
- Andrew Appel prófessor í tölvuvísindum við Princeton segir að hægt sé að setja skaðlegan kóða í kosningavélar Dominion „með skrúfjárni á sjö mínútum.“
- Rannsókn Háskóla Kaliforníu Berkeley sýnir að hægt er að breyta atkvæðum eftir að kjósandinn setur atkvæðaseðilinn í kosningavélina.
- Kosningavélarnar eru tengdar Internet og hægt að stjórna þeim úr fjarlægð og samkvæmt finnska tölvuforritaranum Affiant Hari Hursti „þá liggja fyrir sannanir um fjarskiptatengingar.“
- Hursti segir að hægt sé að skrifa yfir skráða logga vélanna sem þýðir að þeir sem fara inn í kerfið geta falið slóðina eftir sig.
- Ronald Warkins sérfræðingur í tölvuöryggismálum segir að þeir sem sjá um vélarnar geti breytt stillingum til að útiloka viss atkvæði frá talningu. Slíkum ótöldum atkvæðum sé síðan hægt að eyða á einfaldan hátt.
- Watkins sagði að til þess að kynna úrslitatölur þá kópíerar stjórnandi vélarinnar möppuna með úrslitunum og færir yfir á USB stikku. „Slíkt er afskaplega viðkvæmt gagnvart óheiðarlegum starfsmönnum.“
- Engar öryggisreglur eru til um meðhöndlun USB færanlegra harðdiska og t.d. í Georgia fundust 3.300 atkvæði á einum slíkum disk sem ekki voru inni í kosningakerfinu.
- Engin dagsetning er á skjölum um prufukeyrslu kosningavélanna.
- Smartmatic er í deilumálum vegna tæknilegra bilana í hugbúnaðinum sem sagðar eru hafa haft áhrif á úrslut millikosninganna 2010 og 2013 á Filippseyjum og hafa „vakið spurningar um kosningasvindl og svik.“
- Williams Briggs hefur rannsakað að á milli 31.559 og 38.886 pöntuð atkvæði voru send af Repúblikönum en voru ekki talin með við atkvæðatalninguna.
- Á milli 16.938 og 22.771 kjósendur Repúblikana fengu senda atkvæðaseðla heim án þess að hafa pantað þá.
- 20.311 kjósendur utankjörstaðar í Georgia kusu eftir að þeir höfðu flutt lögheimilið burtu úr fylkinu en slíkt er ólöglegt.
- Georgia og Demókrataflokkurinn gerðu ólöglegan samning sem leiddi til vanrækslu á samanburði undirskrifta nafna á atkvæðaumslögum við undirskriftir hjá yfirvöldum.
- Brian Kemp fylkisstjóri skipaði starfsmönnum kjörstjórnar að opna ytri umslög utankjörstaðaatkvæða þremur vikum fyrir kjördag sem er óheimilt skv. lögum Georgia.
- Handtalning atkvæða í forsetakosningunum í Georgia er ólögleg vegna þess að eftirlitsmenn Repúblikana fengu ekki að vera viðstaddir talninguna.
- Atkvæði fyrir Donald Trump voru við endurtalningu sett í atkvæðastafla Joe Bidens samkvæmt fjölda vitnum ásamt myndbandi Project Veritas.
- Atkvæði úr kössum „No Vote“ og „Jorgensen“ voru sett í „Biden“ kassa.
- Mörgum kjósendum sem sent höfðu póstatkvæði var meinaður aðgangur að kjörstofu á kjördag til að kjósa.
- Margir kjósendur fengu ekki að kjósa á kjördag, því sagt var að þeir hefðu þegar greitt póstatkvæði án þess að þeir höfðu gert það.
- Vitni staðfestir að við endurtalningu voru undirskriftir ekki athugaðar á póstumslögum.
- Sum héruðin endurtöldu með vélum í stað þess að láta fólk endurtelja atkvæðin.
- Fjöldi atkvæða var grunsamlega „ósnertur“ og næstum öll fyrir Biden. Starfsmaður með 20 ára reynslu í meðhöndlun atkvæða sagði pappírinn sléttan og strokinn „ég tók eftir því að merking við frambjóðendur var óvenjulega lík kannski gerð með merkingarvél.“
- Á a.m.k. einni kjördeild í Milton í Georgiu voru kosningastarfsmenn látnir kvitta fyrir kosningavélar „á sunnudegi, jafnvel þótt vélarnar hafi ekki komið fyrr en kl 2 aðfaranótt kosningadags (sem var þriðjudagur). Að auki voru vélarnar ekki innsiglaðar eða læstar og framleiðslunúmer vélanna voru ekki þau sömu og á pappírum.“
- Vitni staðfestir að margar stæður atkvæða voru „100% fyrir Biden.“
- Sama vitni staðfestir að „vatnsmerki a.m.k. á þremur atkvæðum voru þykk í gráum lit í staðinn fyrir að vera gegnsæ.“
- Yfirvöld sögðu ósatt að leki væri ástæðan fyrir stöðvun atkvæðatalningar í Fulton héraði. „Eini vatnslekinn sem þurfti að laga á State Farm Arena á bilinu 3. – 5. nóvember var í klósetti snemma dags 3. nóvember sem ekki var í neinu sambandi við talningarherbergið.“
- Eftir að starfsmenn voru sendir heim sáu vitni marga einstaklinga vera eftir og telja án þess að nokkrir eftirlitsmenn væru viðstaddir.
Kröfur
Ákærendur fara fram á það við dómstólinn að hann fyrirskipi Georgia fylki að:
- ógilda úrslit kosninganna
- senda ekki útkomu núverandi kosninga til kjörmannaráðsins
- senda í staðinn þá staðfestingu á útkomu kosinganna að Trump sé sigurvegari kosninganna
- gera allar kosningavélar og hugbúnað upptækan í Georgia og afhenda sérfræðingateymi ákærenda til rannsóknar
- telja ekki atkvæði sem koma frá vélum sem eru ekki viðurkenndar samkvæmt lögum ríkisins og fylkisins
- framleiða 36 tíma myndband úr öryggisvélum allra herbergja sem notuð voru við talningu atkvæða í State Farm Arena í Fulton héraði
Sjá nánar hér