Kveikt á Friðarsúlunni í þrettánda sinn

Friðarsúlan í Viðey.

Næstkomandi miðvikudag 9.október kl.20:00 verður kveikt á Friðarsúlunni í Viðey, listaverki Yoko Ono í 13.sinn. Listaverkið er tileinkað minningu eiginmans Yoko Ono, bítilsins John Lennon en dagsetningin er einmitt fæðingardagur hans, en ljós súlunnar munu loga til 8.desember sem er dánardagur Lennons.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg um viðburðinn segir meðal annars “ Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17.30 til 19.30. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka. Fyrsti vagn fer frá Hlemmi kl.17.15 og ekið verður til kl. 19.00. Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey kl. 20.30. Hægt verður að taka strætó frá Skarfabakka að Hlemmi frá kl. 20.40 og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey„.


Dagskráin er eftirfarandi:


Dagskráin hefst kl. 17.45 með leiðsögn um verk Richards Serra í Viðey á vegum Listasafns Reykjavíkur. Klukkan 18.00 hefst söguganga um byggð og sögu í eyjunni á vegum Borgarsögusafnsins. Leiðsögnin er endurtekin kl. 18:45 og 19:00.  Beint streymi verður svo frá athöfninni klukkan 20.00. Leiðsögn hefst við Viðeyjarstofu.


Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá sem hefst kl. 17.45 og stendur til 21.00.


• 17:45 Ganga á vegum Listasafns Reykjavíkur um Richard Serra
• 18:00 Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur
• 18:45 Ganga á vegum Listasafns Reykjavíkur um Richard Serra
• 19:00 Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur


Dagskrá vegna Friðarsúlu


• 19:00 Salóme Katrín flytur tónlist sína í Viðeyjarnausti
• 19:45 Hamrahlíðarkórinn kemur fram við Friðarsúluna
• 20:00 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs flytur ávarp
• 20:10 Friðarsúlan tendruð undir laginu Imagine með John Lennon
• 20:30 Teitur Magnússon leikur fyrir gesti í Viðeyjarnausti

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila