Forgangsmál að tryggja öryggi vegfarenda

Frá ráðstefnu Landsbjargar um slysavarnir

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fjallaði um öryggi í samgöngum í ávarpi á ráðstefnunni Slysavarnir sem fram fór á dögunum en Landsbjörg heldur ráðstefnuna á tveggja ára fresti. Til ráðstefnunnar er kallað fagfólki úr ýmsum stéttum sem vinna að slysavörnum og öryggismálum á Íslandi.

Sigurður sagði að öruggar samgöngur væru forgangsmál í tillögu að samgönguáætlun sem mælt verður fyrir á Alþingi í nóvember. Þar væri gengið út frá því að banaslys í samgöngum væru ekki ásættanleg og að allt skuli gert sem í mannlegu valdi stendur til að koma í veg fyrir þau. Það yrði gert meðal annars með flýtingu mikilvægra vegaframkvæmda

Þá hrósaði Sigurður Ingi miklum árangri sem hefði náðst í öryggismálum á síðustu árum og ættu viðbragðsaðilar; lögregla, slökkvilið, Landhelgisgæslan, heilbrigðisstarfsmenn og síðast en ekki síst sjálfboðaliðar björgunarsveitanna, ríkulegan þátt í þeim árangri. 

Ísland hefur með ykkar aðstoð náð eftirtektarverðum árangri í siglingum þar sem banaslys eru orðin afar fátíð og í nokkur ár hefur engin látið lífið á sjó. Þar vegur gæfuríkt samstarf við Slysavarnafélögin þungt, að ekki sé minnst á Slysavarnaskóla sjómanna sem hefur lagt grunninn að þeim frábæra árangri,“ sagði Sigurður Ingi.

Starfshópur um eflingu björgunarskipa

Hann sagði slysavarnafélögin hafa unnið þrekvirki við björgun á sjó. Ríkisstjórnin hafi þess vegna sett á laggirnar starfshóp sem í samstarfi við félögin mun vinna tillögu að eflingu björgunarskipanna sem mörg hver eru komin til ára sinna.

Þá sagði Sigurður að eftir mörg góð ár í flugi hafi því miður á þessu ári orðið tvö alvarleg slys með sorglegum afleiðingum. Sömuleiðis hafi okkur ekki borið gæfu til að koma í veg fyrir umferðarslys. Hann minnti á að árlegur samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er metinn um 40 til 60 ma.kr. fyrir utan tilfinningalegt tjón.

„En hvað veldur alvarlegustu slysunum og hvernig komum við í veg fyrir þau? Ávallt þarf að hafa í huga að  mannleg mistök eru óhjákvæmileg  og það er mikilvægt að við allt skipulag, hönnun og gerð allra samgöngumannvirkja sé tekið mið af því“ sagði Sigurður.

Fræðsla lykillinn

Á ávarpi sínu sagði ráðherra að mannlegi þátturinn væri oft orsakavaldur slysa. Til að breyta hegðun þurfi markvissa og góða fræðslu. Í þeim efnum hafi samstarf ráðuneytisins og Samgöngustofu við sveitir Landsbjargar verið ómetanlegt. Verkefnið „Vertu  snjall undir stýri“ væri til að mynda þörf áminning um að nota aldrei snjalltæki undir stýri.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila