Endurskoða lög um ráðherraábyrgð og Landsdóm

Lj—smynd: Bragi Þ—r J—sefsson S: 898-7290 www.bragi.is

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun að ráðast í endurskoðun á lögum um ráðherraábyrgð annars vegar og lögum um Landsdóm hins vegar. Tillagan var lögð fram af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.

Fram kemur í tilkynningu að á undanförnum áratugum hafi lög um ráðherraábyrgð og Landsdóm sætt gagnrýni hér á landi í ljósi réttarþróunar í sakamálaréttarfari. Slíka gagnrýni sé til að mynda að finna í skýrslu um starfsskilyrði stjórnvalda frá 1999, skýrslu um eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu frá 2009 og í skýrslu þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá 2010. 
Í tilkynningunni kemur einnig fram að endurskoðun laganna muni meðal annars taka til skýrleika refsiákvæða um embættisbrot, aðdraganda ákæru, svo sem frumkvæði að rannsókn á embættisfærslum, umgjörð máls og hlutverk þingnefnda í því sambandi, og skipan Landsdóms. Forsætisráðherra mun í samráði við dómsmálaráðherra fela sérfræðingi að leiða vinnuna og standa vonir til þess að henni verði lokið á haustmánuðum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila