Samið um viðbótarfjárveitingu til landshlutasamtaka

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og framkvæmdastjórar sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga hafa undirritað samninga um ráðstöfun 200 milljóna kr. aukafjárveitingar til sóknaráætlana landshluta. Fjárveitingin kemur í gegnum aukafjárlög ársins 2020 sem Alþingi samþykkti þann 30. mars síðastliðinn í þeim tilgangi að bregðast við áhrifum Covid-19 faraldursins á landsbyggðinni.

Ákveðið var að skipta 150 milljónum af upphæðinni jafnt á milli landshluta en 50 milljónum króna var skipt á milli landshluta að teknu tilliti til hlutfalls atvinnutekna í gistingu og veitingum árið 2018 á, hverju svæði fyrir sig, byggt á upplýsingum úr skýrslu Byggðastofnunar Atvinnutekjur 2008-2018 eftir atvinnugreinum og svæðum. 

Landshlutasamtökum  sveitarfélaga á hverju svæði verður falið að ráðstafa fjármagninu og er það ýmist gert í gegnum uppbyggingasjóði þeirra eða í gegnum sérstök átaks- eða áhersluverkefni. Í öllum tilvikum er áhersla lögð á verkefni sem eru atvinnuskapandi og/eða stuðla að nýsköpun, einkum í tengslum við þær atvinnugreinar sem orðið hafa fyrir hvað mestum neikvæðum afleiðingum Covid-19 faraldursins á hverju svæði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila