Könnun: Afgerandi meirihluti andvígur lokun Laugavegar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er andvígur lokun Laugavegar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ert þú samþykk/ur eða andvíg/ur lokun Laugavegar? Niðurstaðan var eftirfarandi:


Ég er andvíg/ur lokun Laugavegar 84,4%

Ég er hlynnt/ur lokun Laugavegar  10,3%

Ég hef ekki myndað mér skoðun á málinu 5,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila