Lilja Alfreðsdóttir stöðvaði innflutning á lambahryggjum frá Nýja-Sjálandi að beiðni Guðna Ágústssonar

Lilja Alfreðsdóttir mennta og menningarmálaráðherra

Lilja Alfreðsdóttir mennta og menningarmálaráðherra stöðvaði fyrirhugaðan innflutning á 200 tonnum af lambahryggjum frá Nýja-Sjálandi að beiðni Guðna Ágústssonar fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Þetta kom fram í máli Guðna Ágústssonar fyrrverandi landbúnaðarráðherra í þættinum Matur og heilbrigði í dag en hann var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur.

Guðni sem staðið hefur vörð um íslenskan landbúnað í áraraðir sagði í samtalinu við Arnþrúði að honum hefði brugðið þegar hann heyrði af því að fyrirhugað væri að flytja inn 200 tonn af lambahryggjum alla leið frá Nýja-Sjálandi eða um 17.000 kílómetra leið, og hafi ákveðið að grípa til sinna ráða

ég reyndi eins og ég gat að ná í landbúnaðarráðherra en náði svo í Lilju sem síðan setti fram þá kröfu að málið þyrfti að taka fyrir á ríkisstjórnarfundi þar sem innflutningurinn teldist vera stefnubreyting, og þar við sat, þeir voru með ríkisstjórnarfund í dag og Kristján Þór er búinn að hopa frá málinu, það kom nú í ljós þegar inn og útflutningsnefnd settist aftur yfir málið að meintur skortur á lambahryggjum var ekki til staðar„,segir Guðni.

Hlusta má á viðtalið við Guðna í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila