Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

Frá ráðstefnunni í dag

Íslensk sendinefnd er nú komin til Madrid á Spáni þar sem 25. ráðstefna aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP25) var sett í dag.

Fram kemur í tilkynningu að meginverkefni fundarins sé að ljúka við regluverk um innleiðingu Parísarsamningsins, en þar ber hæst reglur varðandi 6. grein Parísarsamningsins um samvinnu ríkja um losunarmarkmið, auk tæknilegrar vinnu varðandi bókhald og skýrslugjöf. Jafnframt verður á fundinum fjallað um málefni frumbyggja í samhengi við loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum.

Málefni hafsins verða einnig ofarlega á blaði, en formennska í viðræðunum er nú í höndum Síle, sem hefur sett sérstaka áherslu á málefni hafsins í loftslagsumræðunni. Til stóð að halda ráðstefnuna í Santiago í Síle, en hætt var við það vegna óeirða þar og fundurinn fluttur til Madrídar. Formennska er eftir sem áður í höndum Síle.

Ráðherravika fundarins hefst næstkomandi mánudag og mun Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sækja fundinn fyrir Íslands hönd. Lesa má nánar um fundinn með því að smella hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila