Í sérstöku bréfi til Sameinuðu Þjóðanna vara 500 vísindamenn Antonio Guterres og aðra dómsdagsspámenn við því, að það sé bæði „illa gert og vanhugsað að eyða billjónum dollara í ekki-vandamál„. Skrifa vísindamennirnir að það sé engin aðsteðjandi vá í loftslagsmálum og að þau loftslagsmódel sem alþjóða stjórnmál byggja á séu ónothæf. Í staðinn grafa þau undan efnahagsmálum á tilgangslausan og mótbjóðandi hátt og setja mannslíf í hættu í löndum sem neitað er um aðgang að ódýrri, stöðugri rafmagnsframleiðslu.
Hvetja vísindamennirnir SÞ að fylgja loftslagsstefnu sem grundvölluð er á heilbrigðum vísindum, raunverulegum efnahag og alvöru áhyggjum vegna þeirra sem verða fyrir búsifjum af völdum dýrra og ónauðsynlegra mótvægisaðgerða.
Biðja þeir aðalritara SÞ, Antonio Guterres að setja þetta mál á dagskrá yfirstandandi loftslagsfundar í New York og jafnframt að boðað verði til fundar í upphafi næsta árs með vísindamönnum hvaðanæva úr heiminum frá báðum hliðum loftslagsumræðnanna.
Undir bréfið rita m.a. prófessorarnir Guus Berkhout Hollandi, Richard Lindzen USA, Reynald Du Berger Frönsku Kanada, Ingemar Nordin Svíþjóð, Alberto Prestininzi Ítalíu, Jeffrey Foss Ensku Kanada, Benoit Rittaud Frakklandi, Frits Vahrenholt Þýzkalandi ásamt vísindamönnunum Terry Dunleavy Nýja Sjálandi, Jim O´Brian Írlandi, Viv Forbes Ástralíu, Morten Jödal Noregi, Rob Lemeire Belgíu og Viscount Monckton Bretlandi.