Maður verður gáttaður á því hvað raunvísindafólk er tilbúið að ganga langt í blekkingunni um loftslagsmál, og jafnvel svo langt að það er tilbúið til að fallast á kenningar sem eru mjög óvísindalegar.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Páls Vilhjálmssonar kennara, blaðamanns og bloggara í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.
Páll bendir á sem dæmi að samanburður á veðri vegna loftslagsmála standist til dæmis ekki skoðun þegar aðferðarfræðing er skoðuð
“ þegar við tölum um loftslag í tengslum við veður þá er viðmiðið um 30 ár, það er að segja það eru borin saman 30 ár og út frá því greint hvort breytingar hafi orðið á veðurfari, en í þessum loftslagsmálum er verið að bera síðustu þrjú ár saman, það er ótrúverðugt og alls ekki á vísindalegum forsendum, svona vinnubrögð geta dregið úr tiltrú á vísindin„,segir Páll.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan