Könnun: Telja of væg viðurlög við árásum á lögreglumenn

Frá búsáhaldabyltingunni

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja viðurlög of væg við árásum á lögreglumenn. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Eru of væg viðurlög við árásum gagnvart lögreglumönnum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 73,4%

Nei 15,6%

Hlutlaus 11,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila