Lögregla óskar eftir að ná tali af manni í tengslum við rannsókn máls

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hermann.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila