Lögreglan hefur sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að töluvert hefur verið um þjófnaði og innbrot að undanförnu og almenningur beðinn um að vera á varðbergi gagnvart óprúttnum aðilum. Um að ræða þjófnaði á reiðhjólum, rafmagnshlaupahjólum og vespum, auk þess sem nokkuð hefur verið um innbrot í bæði bíla og á byggingarsvæði.
Fólk er því hvatt til að geyma hjól og vespur innandyra, ef það hefur tök á, og umráðamenn ökutækja er minntir á að hafa ekki hluti í augsýn, sem kunna að freista þjófa.
Þá biður lögregla fólk að vera á varðbergi gagnvart því að illa fengnir hlutir gætu verið boðnir til kaups. Lögreglan ítrekar jafnframt að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í umhverfi þess.
Þá minnir lögregla á að hægt er að hafa samband og koma upplýsingum á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.