Lýst eftir Áslaugu Eik Ólafsdóttur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Áslaugu Eik Ólafsdóttur, 25 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík síðdegis í gær, laugardag. Áslaug er 161 sm á hæð, með mjög stutt brúnt hár og græn augu. Hún er klædd í drapplitaðar gallabuxur, hvítan stuttermabol, strigaskó, ljósbleika dúnúlpu og gráa húfu. Áslaug er með heyrnartól og bakpoka meðferðis. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Áslaugar, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila