Lögreglan leitar tveggja manna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila