Lögreglan lýsir eftir fjórum mönnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum mönnumvegna máls sem hún hefur til meðferðar, og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sjá má myndir af mönnunum hér að neðan.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila