Rannsaka mannslát í miðborg Reykjavíkur

Lögreglan rannsakar nú lát ungs manns sem talinn er hafa látist eftir fall af fjórðu hæð húss í miðborginni í gærmorgun. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn hafi verið fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést um miðjan dag í gær.

Þá segir í tilkynningunni að rannsókn lögreglu beinist meðal annars að því með hvaða hætti maðurinn hafi fallið fram af húsinu. Að sögn lögreglu verða ekki veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila