Lögreglan leitar ökumanns

Lögreglan á höfurðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún biðlar til almennings vegna umferðarslyss þar sem bifreið var ekið í veg fyrir aðra bifreið með þeim afleiðingum að slys hlaust af. Tilkynningin er eftirfarandi:


Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar, nýlegrar jeppabifreiðar vegna umferðarslyss á Reykjanesbraut þriðjudaginn 10. mars um kl. 10 fyrir hádegi. Þar var ekið í veg fyrir ökumann á rauðum Skoda Octavia á leið norður Reykjanesbraut, á móts við Brunnhóla í Hvassahrauni, með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði utan vegar.

Ökumaður hvítu jeppabifreiðarinnar, sem er talinn vera lágvaxinn, ók rakleiðis af vettvangi. Tveir voru fluttir á slysadeild og reyndist annar þeirra vera talsvert slasaður.

Lögreglan biður ökumann hvítu jeppabifreiðarinnar um að gefa sig fram, en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið helgig@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila