Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar andlát konu á sextugsaldri, en konan fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í gærkvöld.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tveir menn sem voru á staðnum þegar lögreglu bar að hafi verið handteknir í þágu rannsóknar málsins, en annar mannanna er um þrítugt en hinn á sextugsaldri.
Þá segir í tilkynningunni að rannsókn málsins sé á frumstigi en hún beininst meðal annars að því hvort mennirnir hafi átt sinn þátt í andláti konunnar.