Loka Suðurstrandavegi í kvöld og rýma Geldingadali á miðnætti

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að í kvöld klukkan níu verði Suðurstrandavegi lokað tímabundið og Geldingadalir rýmdir sömuleiðis tímabundið.

Í tilkynningu kemur fram að þessi ráðstöfun sé gerð af öryggisástæðum þar sem óttast er að ekki verði hægt að tryggja öryggi fólks miðað við þann mannfjölda sem safnast hefur saman að næturlagi á svæðinu.

Þörf er á að hvíla björgunarlið sem nú hefur staðið vaktina í rúma viku en ekki er sjálfgefið að hægt verði að tryggja öryggi fólks seint um kvöld og að næturlagi við gosstöðvarnar í því margmenni sem þar hefur verið síðustu daga. “  

Þá kemur fram að komið geti til lokana á Suðurstrandarvegi fyrirvaralaust ef í óefni stefnir með bílastæði á svæðinu eða ef upp koma aðstæður er krefjast tafarlausra aðgerða af hálfu viðbragðsaðila.

Vegna smithættu hefur sóttvarnalæknir eindregið hvatt fólk til þess að vera heima og láta vera að heimsækja eldstöðvarnar. Þar sem eldgosið virðist ekki vera á undanhaldi ætti að gefast nægur tími til að berja það augum en ágætlega lítur út með veður á næstu dögum.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila