Magga Stína söngkona: ,,bóluefnið er árás á hormónakerfi kvenna“ – vill rannsókn!

Eftirfarandi færsla birtist á bloggsíðu Þórdísar Bjarkar Sigurþórsdóttur

Í facebook hópnum Góða Systir stendur yfir mikil umræða tengd breytingum á blæðingum kvenna eftir C19 bóluefnin. Sú sem hóf umræðuna í þetta sinn er Rebbekka Ósk sem hefur verið með stanslausar blæðingar í um 50 daga eftir síðari sprautuna. Rebekka vill svör frá heilbrigðisráðherra og segir augljóslega verið að þagga niður þessar alvarlegu aukaverkanir, jafnt sem aðrar. Umræðan sýnir að konur eru ýmist að fá ofsablæðingar, milliblæðingar, blæðingar eftir tíðarhvörf, engar blæðingar og túrverki sem jafnast á við fæðingarhríðir, bólgur í brjóstin, mikinn höfuðverk o.fl. 

Magga Stína söngkona sem gaf mér leyfi til að setja hér inn hennar orð hefur þetta um málið að segja:

„Það er fullkomlega óábyrgt að hundsa aukaverkanir eins og þessar. Ég legg til að allar konur sem eru tengdar hér inn og fundið hafa fyrir aukaverkunum af bólusetningu tilkynni það strax til Lyfjastofnunar. Það er mjög mikilvægt. Einnig fyndist mér rétt að þær konur sem nú þegar hafa tjáð sig um þetta á þessum þræði og eru mögulega tilbúnar að tjá sig annarsstaðar taki saman höndum og láti fjölmiðla vita eins og þú gerðir, Rebekka. Þú átt þakkir skildar fyrir það. Það er nauðsynlegt að vekja athygli á þessu. Ég held því fram að þetta sé meðvitað þaggað niður. Það er mín persónulega skoðun. Ég hef nú ekki verið hingað til sérlega viljug að deila með öðrum taktinum í mínum tíðahring en vil nú segja að blæðingarnar sem hófust eftir seinni Moderna sprautuna (en það er eitt og hálft ár síðan tíðahvörf urðu og ég hætti algerlega á blæðingum) ofan í bólusetningar-veikindin voru hreint út sagt brjálæðislegar, stóðu yfir í nærri þrjár vikur með óbærilegum túrverkjum og einkennum eins og verkjum í brjóstum, einkenni sem enn eru ekki alveg farin. Hvernig má það vera að konur sem hafa fyrir löngu farið í gegnum tíðahvörf verði fyrir hvílíkum hormónabreytingum við bóluefni? Ég gef satt að segja ekki mikið fyrir útskýringar sér­­­náms­­læknis í lyf­­lækningum (innsk. sem segir hita geta valdið þessum breytingum) en það eru sjálfsagt mínir eiginn fordómar.“

„Það á mjög augljóslega að þagga þetta í hel og ég spyr, af hverju? Nú er líka að koma á daginn að bólusetningin hefur ekki þá virkni sem haldið var fram í fyrstu. Á þá að bólusetja aftur? Nógu hefur fólk nú kostað til við að gleypa við öllu þegjandi og hljóðalaust og maður hljóp jú algerlega sjálfviljugur og með fullri meðvitund inn í Laugardalshöll til að láta sprauta sig með einhverju sem enginn hefur hugmynd um hvað er, allt í krafti þess að þjóna heildinni. AF HVERJU eru eftirköstin ekki rannsökuð? Það hefðu verið hæg heimatökin við að biðja þjóðina (sem hafði hlýtt tilmælum í nánast einu og öllu um að sýna skynsemi og vera heima hjá sér marga mánuði) um að hripa niður líðan sína eftir bólusetninguna og þá værum við hugsanlega einhverju nær, eða hvað? Sóttvarnarlæknir sem hefur verið nánast í guðatölu hjá þjóðinni (mér líka) gerir, í hvert einasta skipti lítið úr eftirköstum bólusetningarinnar og ENGINN úr hópi hans, hvorki hann né landlæknir hefur minnst orði á þessa árás á hormónakerfi kvenna, sem ótrúlega margar konur hafa orðið fyrir. Hér kemur fram að áttatíu tilkynningar hafi borist Lyfjastofnun Vitið þið hvað þær eru margar konur sem hafa sagt frá þessu hér á „Góða systir“? Er hægt að komast að því?“

Viðbót:
Samkvæmt frétt frá Lyfjastofnun 15. júlí höfðu yfir 250 tilkynningar borist og ég bíð enn eftir svari frá þeim hver talan er nú eftir að umræðan varð meiri.

Hér er hópurinn sem Rebekka stofnaði, aðeins er hægt að komast í hópinn ef þú glímir við breytingar sem þessar eftir bólusetningu og því er hópurinn um leið einskonar talningarvél. Hægt verður að bera saman fjölda í hópnum við tölur Lyfjastofnunar sem sendir aðeins frá sér ef spurt er, ekki er hægt að sjá neitt á síðunni um þessar aukaverkanir frekar en aðrar. 

Hér eru fleiri frásagnir af veikindum eftir bólusetningar:


„Læknar vilja ekki gefa mér seinni sprautuna.“

„Er eins og níræð kona eftir AstraZeneca.“

„Fárveikur eftir Janssen og fékk Covid.“

Stanslaust taugastríð eftir AstraZeneca.

Ef ég sé eftir einhveru í þessu lífi...“

„Var sjaldan veik en nú fæ ég allar pestir“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila