„Markmiðið er að breyta Úkraínu í kjötkvörn og nota fólkið sem fallbyssufóður í eilífu umboðsstríði.“

Úkraína hefur verið blekkt til að verða „kjötkvörn“ og „fallbyssufóður“ fyrir valdaelítu vestræna heimsins, sem ætlar að heyja „eilíft umboðsstríð“ gegn Rússlandi með aðstoð lands og íbúa. Clare Daly, þingmaður ESB, sagði þetta nýlega í ræðu á ESB-þinginu.

„Markmiðið er eilíft stríð, ekki farsælt stríð“

ESB-þingkonan Clare Daly frá Írlandi gagnrýndi ESB-elítuna harðlega fyrir afstöðuna til stríðsins við Rússland í umræðum á ESB-þinginu.

Í síðustu viku var Úkraína samþykkt sem umsóknarríki í ESB en að sögn Daly er þetta bara tálbeita til að lokka landið í áframhaldandi lífshættulega gildru.

Raunverulegur tilgangur er að heyja endalaust „umboðsstríð“ til að reyna að skaða Rússa og þvo peninga fyrir vopnaiðnaðinn – alveg eins og í stríðinu í Afganistan fullyrðir hún.

„Markmiðið er eilíft stríð, ekki farsælt stríð.“ Þetta voru orð Julian Assange frá 2011 um stríðið í Afganistan – orð sem núna má alveg eins heimfæra á Úkraínu, segir hún og heldur áfram:

„Úkraína ætti örugglega að geta gengið í ESB en ekki með skilyrðum sem setja þjóðina í gjaldþrot heldur þegar landið er tilbúið og meirihluti þjóðarinnar kýs að gera það. En það mun örugglega ekki gerast á sama tíma og landið er virkt stríðssvæði, það vita allir.“

Valdaelítan græðir á stríðinu á meðan venjulegir Evrópubúar borga kostnaðinn

„Þess í stað framlengjum við þetta stríð með tilbúnum hætti með stöðugu flæði þungavopna og komum í veg fyrir friðarviðleitni. ESB tryggir pattstöðu og að Úkraína muni aldrei geta valið sína eigin leið. Ursula von der Leyen, forseti ESB, opinberaði þetta s.l. föstudag, þegar hún sagði að Úkraínumenn væru tilbúnir að deyja fyrir úkraínsku afstöðuna.“

(Von der Leyen skrifaði á Twitter, sjá neðar á síðunni, að „Úkraínumenn eru tilbúnir til að deyja fyrir afstöðu Evrópu“ lesist ESB).

„Guð minn góður, hvílíkur narcissisti!“ þrumaði Clare Daly um leiðtoga ESB.

Valdaelítan græðir á stríðinu á meðan venjulegir Evrópubúar borga kostnaðinn segir Clare Daily:

„Raunverulega markmiðið hér – og við vitum að stöður frambjóðenda eru notaðar sem agn í gildrunni – er að breyta Úkraínu í kjötkvörn og nota fólkið sem fallbyssufóður í eilífu umboðsstríði gegn Rússlandi, þar sem evrópskir skattgreiðendur standa fyrir hverjum reikningi á fætur öðrum til vopnaiðnaðarins.“

„Það er ekki hægt að gleðjast yfir neinu af þessu“ segir Clare Daly að lokum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila