Heilbrigðiseftirlitið biður veitingastaði að gæta að reglum varðandi heimsendingar

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur sent frá sér tilkynningu þar sem veitingastaðir sem nýverið hafa tekið upp heimsendingar gæti að því að reglum og gæðaeftirliti sé fylgt.

Í tilkynningu segir að borið hafi á því að undanförnu að matur sem berist viðskiptavinum með heimsendingu hafi verið orðinn kaldur þegar honum hafi verið komið á áfangastað,auk þess sem heimsendingar hafi verið afhentar á einkabílum í einhverjum tilfellum. Bendir heilbrigðiseftirlitið á að í einkabílum geti hafa verið fólk í sóttkví, gæludýr og börn. Í tilkynningunni er minnt á nokkur atriði sem fyrirtæki í matvælaiðnaði þurfa að hafa í huga þegar kemur að matargerð og heimsendingu en þau eru:

Tryggja skal öryggi

Þau fyrirtæki sem ætla að bjóða upp á heimsendingaþjónustu verða að tryggja að flutningsbúnaður sé hreinn og taka skal fram að ekki er leyfilegt að nota einkabíla fyrir heimsendingaþjónustu.  Matvæli þurfa að vera varin gegn mengun.

Hitastig mikilvægt

Til að draga úr líkum á matarsýkingum verða fyrirtækin að hafa stjórn á hitastigi matvælanna þangað til þau eru afhent til viðskipavina. Fyrirtækin verða því að hafa þar til gerðan búnað sem tryggir að hita- eða kælikeðjan rofni ekki þegar veitingarnar fara úr húsi. 

·       Heitum mat skal halda við 60°C, kælivörum við 0-4°C

·       Frystivörur við -18°C eða lægra.

Handþvottur og -spritta fyrir afhendingu

Að lokum er minnt á mikilvægi handþvottar, en það á einnig við um sendla í heimsendingaþjónustu. Nauðsynlegt er að handspritt sé til staðar í öllum flutningstækjum svo sendlar geti sprittað hendur á milli viðskiptavina.

Finna má ítarlegri leiðbeiningar varðandi heimsendingaþjónustu á upplýsingasíðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna COVID-19. Beinn hlekkur er eftirfarandi: https://reykjavik.is/frettir/leidbeiningar-fyrir-heimsendingarthjonustu-med-matvaeli

Auk þess er Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur á Facebook, en þar er ýmsum ráðum og fróðleik deilt með fylgjendum:  https://www.facebook.com/heilbrigdiseftirlitrvk

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila