Matvælaráðherra skipar nýja stjórn Bjargráðasjóðs – Bróðir Steingríms Joð einn stjórnarmanna

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað nýja stjórn Bjargráðasjóðs til fjögurra næstu ára Athygli vekur að Jóhannes Sigfússon bóndi á Gunnarsstöðum og bróðir Steingríms Joð Sigfússonar fyrrverandi formanns Vinstri grænna er einn þeirra sem Svandís skipaði í hina nýju stjórn.

Hina nýju stjórn skipa:

  • Jóna Björg Hlöðversdóttir, formaður, bóndi, Björgum, Þingeyjarsveit
  • Jóhannes Sigfússon, bóndi, Gunnarsstöðum, Svalbarðshreppi
  • Guðrún Eik Skúladóttir, bóndi, Tannstaðabakka, Húnaþingi vestra

Í tilkynningu segir að sjóðnum sé ætlað að bæta tjón í landbúnaði af völdum náttúruhamfara sem ekki fæst bætt annars staðar. Dæmi um verkefni sjóðsins er stuðningur vegna kal- og girðingatjóna eftir veturinn 2019-20, og flóða og skriðufalla líkt og þeirra sem urðu í Út-Kinn í Þingeyjarsýslu í fyrra. Saga Bjargráðasjóðs spannar rúmlega öld og hefur sjóðurinn skipað þýðingarmikið hlutverk við að hjálpa bændum að takast á við tjón sem oft eru ekki tryggjanleg. Náttúruhamfaratrygging Íslands annast rekstur og umsýslu sjóðsins.

Starfshópur á vegum matvælaráðuneytisins vann nýverið úttekt á tryggingamálum bænda. Í hópnum áttu sæti fulltrúar matvæla- og fjármálaráðuneyta, Bændasamtaka Íslands, Bjargráðasjóðs, Náttúruhamfaratryggingar Íslands og samtaka fjármálafyrirtækja fyrir hönd tryggingafélaga. Skýrsla og tillögur hópsins liggja nú fyrir og leggur hópurinn m.a. til að lög um Bjargráðasjóð verði endurskoðuð. Ný stjórn sjóðsins mun vinna úr ákvörðunum matvælaráðherra þegar þær liggja fyrir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila